Kæri formaður,
Formennska í húsfélagi er sjálfboðastarf sem tekur oft meiri tíma en nokkur reiknaði með: fundarboð, tölvupóstar, kvittanir og spurningar um hver eigi að þrífa. Nágrannar eru kerfi sem tekur á þessu, smíðað fyrir lítil fjöleignarhús á Íslandi.
Það sem kerfið gerir fyrir þig:
1. Boðar húsfund rétt. Þú setur inn fund og dagskrá og íbúar fá tilkynningu í appinu og tölvupósti. Kerfið varar þig við ef boðunarfresturinn er utan þess sem lög um fjöleignarhús gera ráð fyrir: 4–20 dagar, en 8–20 fyrir aðalfund.
2. Kemur upplýsingum til allra. Tilkynningar, fundir og skjöl eru á einum stað sem allir íbúar sjá. Þú bætir nágrönnum við með einum tengli, eða með blaði með QR-kóða í stigaganginum, og samþykkir þá sjálfur.
3. Gefur skýra niðurstöðu. Kannanir meðal eigenda eru taldar eftir reglum 41. gr. laganna, eftir fjölda og eignarhlutum. Þá þarf enginn að deila um hvort meirihluti hafi náðst. Ákvarðanirnar sjálfar eru teknar á húsfundi.
4. Heldur utan um gögnin. Fundargerðir vistast sem PDF og skjöl í sameiginlegu safni. Þegar þú lætur af formennsku fylgja gögnin húsfélaginu, ekki tölvunni þinni.
5. Skiptir verkum. Verkahjólið færir röðina á næstu íbúð þegar verk er merkt lokið og lætur þann vita sem á að gera næst. Viðhaldsbeiðnir og þjónustuaðilar eru á sama stað.
Auk þess sjá eigendur yfirlit yfir hússjóðinn. Þar er líka Húsvörðurinn, gervigreindaraðstoðarmaður sem svarar einföldum spurningum um verk og fundi, en svör hans geta verið röng.
Nágrannar eru nýir og enn í þróun. Kerfið er frítt á meðan við þróum greiðsluleiðir. Verð verður kynnt fyrirfram og enginn greiðir nema formaður samþykki það. Ekkert greiðslukort þarf og það er enginn binditími.
Með kveðju,
Nágrannar